Björk Store
Regngalli fyrir börn frá Tutu – vatnsheld regnföt með lausri flíspeysu
Couldn't load pickup availability
Vandaður og fjölhæfur regngalli frá barnavörumerkinu Tutu sem hentar vel fyrir íslenskt veður, leikskóla og útiveru á blautum dögum.
Regngallinn er vatnsheldur með 10.000 mm vatnsheldni og hjálpar til við að halda barninu þurru í rigningu og bleytu.
Jakkinn er með rennilás að framan og hettu sem auðvelt er að smella af. Með jakkanum fylgir mjúk flíspeysa sem hægt er að renna í og úr jakkanum eftir veðri og aðstæðum.
Það gerir jakkann einstaklega fjölhæfan þar sem hægt er að nota hann bæði sem fóðraðan og ófóðraðan regnjakka. Flíspeysuna er einnig hægt að nota sér sem venjulega peysu.
Regnbuxurnar eru ófóðraðar og því henta þær vel fyrir íslenskar aðstæður og mismunandi veður. Þær eru háar í mittið með stillanlegum axlaböndum og teygju neðst á skálmum fyrir betri þægindi.
Á jakkanum eru endurskin á ermum, við mitti og á vösum og á buxunum er endurskin á skálmum sem eykur sýnileika í dimmu og slæmu veðri.
A.T.H. Í stærð 146–152 eru regnbuxurnar flísfóðraðar og með teygju í mittið í stað axlabanda.
✔ Vatnsheldur regngalli með 10.000 mm vatnsheldni
✔ Laus flíspeysa sem hægt er að renna í og úr jakkanum
✔ Hægt að nota jakkann bæði fóðraðan og ófóðraðan
✔ Ófóðraðar regnbuxur sem henta vel fyrir íslenskt veður
✔ Stillanleg axlabönd á buxum
✔ Endurskin á jakka og buxum
✔ Frá barnavörumerkinu Tutu

